Daníel Þór Víðisson



<< March 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Dec 27, 2010
Jésú frændi og hátíðin hans

Jæja þá. Jólin að mestu að baki. Voru ágæt. Hélt mig í foreldrahúsum yfir helstu dagana. Datt í veikindi á aðfangadag svona um það bil þegar ég var að setjast að borði. Svimi, hausverkur og vesen. Eyðilagði svosem ekki jólin en ég hefði gjarnan vilja sleppa við þetta. Hafði það annars mjög gott. Átum Hamborgarhrygg að vanda.
Jóladagur fór í vídjógláp og að sjálfsögðu var troðið í sig kræsingum. Borðuðum önd m.a. Svo á 2. í jólum átti ég að mæta í skýrn og jólaboð en sá mér ekki fært að mæta. Get ekki sagt að ég hafi saknað þess en leiðinlegt að láta ekki sjá sig. Svo var boð hjá mömmu um kvöldið þar sem foreldrar hennar, systkyni og börn mættu. 11 kílóa svín var á borðum sem var rosa gott. Svo er bara venjuleg vika framundan, annað jólaboð á morgun og svo áramót sem er ekki í miklu uppáhaldi. Hef ekki verið spenntasti maðurinn í djamm á þeim degi. Allt of mikið af fólki og bara vesen. Veit svosem ekki hvort ég slái þessu í kæruleysi en ég sé ekki fram á það. Ágætt að vakna bara ferskur á nýju ári. En best að fara að spila NBA2011. Bless

D.V.

By the way, horfði á Black Swan eftir Darren Aronofsky. Hún var alveg frábær. Ein sú besta á árinu.

Posted at 08:34 am by Dannith
Make a comment  

Dec 18, 2010
Jammogjá

Jæja þá. Fór í útskriftarveislu hjá Magga frænda og fjölskyldu. Óska honum og fjölskyldu innilega til hamingju með það. Hörkufjör svona miðað við að vera umkringdur bæði fólki sem maður þekkir mikið, lítið og ekkert. Matur frá Tapas sem var ágætur. Svo er það skatan á morgun. Amma og afi á Selfoss halda partýið og mér hlakkar pínu til. Fannst þetta alltaf helvítis viðbjóður sem krakki en ég hef verið að færa mig uppá skaptið uppá síðkastið. Grútmygluð skata og hamsatólg. Amoníaks brælan er hreint ekki svo slæm. Svo fer að styttast í hátíð jésú krists og hans crew. Kann reyndar ekki vel að meta hans sögur. En hátíðin er góð sem slík. Éta sig út á gaddinn og fá nokkrar gjafir klikkar seint. Fer samt hrikalega í taugarnar á mér að þann dag í dag skuli fólk enþá trúa á bull. Lesandi góður, þú ferð ekki til himnaríkis eða helvítis þegar þú deyrð. Það bara slokknar á þér. Búið, game over. Ekki vera helvítis hræsnari og hálviti. Bless

Posted at 03:52 pm by Dannith
Comments (4)  

Dec 17, 2010
18.des

Hérna kemur þetta. Árið 2011 verður þakið í bloggfærslum frá mér Daníel Víðissyni. Hugsa með mér að það verði allir pissandi í buxurnar yfir þessu En fólk verður bara að halda í sér. Ég vil ekki að það verði allir með brunasár í klofinu. Þá færi ég að kenna sjálfum mér um því ég veit að flestir eru helvítis fávitar sem gætu allt eins pissað á sig. Að dagbókinni sjálfri. Gerði ekkert af viti. Vaknaði snemma en endaði á því að fá mér öl því mér fannst axel alveg eins vera á leiðinni. Hann komst svo ekkert vegna veðurs. Það var reyndar fínasta veður í allan dag í Hfj en það var víst frekar mikið vesen annars staðar. Á von á honum í dag/kvöld. Það verður gaman þar sem við hittumst frekar sjaldan. Gerði svosem fátt eftir það en Lexi kíkti á okkur frændurna og við horfðum á skrítið fólk á youtube.

Posted at 07:20 pm by Dannith
Make a comment