Daníel Þór Víðisson



<< December 2010 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Dec 27, 2010
Jésú frændi og hátíðin hans

Jæja þá. Jólin að mestu að baki. Voru ágæt. Hélt mig í foreldrahúsum yfir helstu dagana. Datt í veikindi á aðfangadag svona um það bil þegar ég var að setjast að borði. Svimi, hausverkur og vesen. Eyðilagði svosem ekki jólin en ég hefði gjarnan vilja sleppa við þetta. Hafði það annars mjög gott. Átum Hamborgarhrygg að vanda.
Jóladagur fór í vídjógláp og að sjálfsögðu var troðið í sig kræsingum. Borðuðum önd m.a. Svo á 2. í jólum átti ég að mæta í skýrn og jólaboð en sá mér ekki fært að mæta. Get ekki sagt að ég hafi saknað þess en leiðinlegt að láta ekki sjá sig. Svo var boð hjá mömmu um kvöldið þar sem foreldrar hennar, systkyni og börn mættu. 11 kílóa svín var á borðum sem var rosa gott. Svo er bara venjuleg vika framundan, annað jólaboð á morgun og svo áramót sem er ekki í miklu uppáhaldi. Hef ekki verið spenntasti maðurinn í djamm á þeim degi. Allt of mikið af fólki og bara vesen. Veit svosem ekki hvort ég slái þessu í kæruleysi en ég sé ekki fram á það. Ágætt að vakna bara ferskur á nýju ári. En best að fara að spila NBA2011. Bless

D.V.

By the way, horfði á Black Swan eftir Darren Aronofsky. Hún var alveg frábær. Ein sú besta á árinu.

Posted at 08:34 am by Dannith

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home