Jæja þá. Fór í útskriftarveislu hjá Magga frænda og fjölskyldu. Óska honum og fjölskyldu innilega til hamingju með það. Hörkufjör svona miðað við að vera umkringdur bæði fólki sem maður þekkir mikið, lítið og ekkert. Matur frá Tapas sem var ágætur.
Svo er það skatan á morgun. Amma og afi á Selfoss halda partýið og mér hlakkar pínu til. Fannst þetta alltaf helvítis viðbjóður sem krakki en ég hef verið að færa mig uppá skaptið uppá síðkastið. Grútmygluð skata og hamsatólg. Amoníaks brælan er hreint ekki svo slæm. Svo fer að styttast í hátíð jésú krists og hans crew. Kann reyndar ekki vel að meta hans sögur. En hátíðin er góð sem slík. Éta sig út á gaddinn og fá nokkrar gjafir klikkar seint. Fer samt hrikalega í taugarnar á mér að þann dag í dag skuli fólk enþá trúa á bull. Lesandi góður, þú ferð ekki til himnaríkis eða helvítis þegar þú deyrð. Það bara slokknar á þér. Búið, game over. Ekki vera helvítis hræsnari og hálviti. Bless